heimilismatur.is

Kjúklingabringur í basiliku-og hvítlaukssósu.

Kjúklingur í basiliku-og hvítlaukssósu

Mjög bragðgóð og auðveld uppskrift.
Course: Kjöt, Kjúklingur
Keyword: kjúklingur, kjúklingabringur, basilika, kjúklingur í sósu

Ingredients

  • 2-4 stk Kjúklingabringur eða kjúklingalæri
  • 2 msk olía
  • 1 bakki sveppir / 250 g Skera sveppina niður
  • 3 stk hvítlauksrif Saxa niður
  • 0,5 bolli KJúklingasoð
  • 0,5 bolli Matreiðslurjómi
  • 1 dl sýrður rjómi
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk pipar
  • 1 hnefafylli fersk basilika saxa niður
  • 5 stiklar fersk steinselja saxa niður

Instructions

  • Byrja á því að þerra kjötið og krydda síðan með salti og pipar. Steikja kjötið í olíu, þar til það er nærri steikt í gegn. Taka kjötið af pönnunni og setja til hliðar.
    Skera sveppina niður og setja á pönnuna, steikja sveppina. Setja hvítlaukinn á pönnuna og láta malla í 2-3 mínútur á meðalhita, passa að brenna ekki hvítlaukinn. Taka sveppina og laukinn af pönnunni og setja til hliðar.
    Næst setjum við vatn á pönnuna og myljum 1/2 til 1 kjúklingatening út í vatnið. Láta suðuna koma upp, skrapa botninn á pönnunni til að ná upp steikarskófunum. Lækka hitann og setja matreiðslurjómann, sýrða rjómann og hvítlaukskryddið á pönnuna. Láta þetta malla í nokkrar mínútur, þar til sósan fer að þykkna. Hræra vel í.
    Setja því næst sveppina og hvítlaukinn út á pönnuna, hræra aðeins og setja síðan kjúklingakjötið út í. Þetta er látið malla á pönnunni þar til kjúklingakjötið er fulleldað.
    Setja kryddjurtirnar næst út á pönnuna, hræra vel saman við sósuna.
    Nú er rétturinn tilbúinn.
    Gott að bera ferskt salat og baquett brauð með.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Recipe Rating