Beikonvafðir kjúklingaleggir

Beikonvafðir kjúklingaleggir.

Beikonvafðir kjúklingaleggir

Hráefni:

Bakki kjúklingaleggir

Beikonbréf

Smá olía og pipar

Meðlæti:

Salat

Sætir kartöflubátar

Köld sósa

Aðferð:

Leggirnir úrbeinaðir, kjötinu rúllað upp, 2-3 beikonsneiðar settir á bretti og rúllað utan um kjúklinginn, fest með 2-3 tannstönglum.

Leggirnir steiktir á pönnu þangað til beikonið brúnast vel, því næst settir í eldfast mót inn í ofn í ca. 30-40 mín.

Salat:

Hér er um að gera að láta ímyndunaraflið njóta sín. Notið það sem ykkur finnst gott.

Sætar kartöflur:

Kartöflurnar afhýddar, skornar í lengjur, sett á klædda bökunarplötu, smá olíu stráð yfir, grófu salti, pipar og rósmarín, bakað inni í ofni í 30 mín. Gott að snúa kartöflunum við ca. einu sinnu.

Köld sósa:

Hérna notast ég við það sem ég á oft í ísskápnum hverju sinni.

Grísk jógúrt

Sítrónu pipar

Mynta og steinselja úr glugganum hjá mér, saxað smátt niður

smá hunang og 1 kraminn hvítlauksgeiri

Verði ykkur að góðu

Heimild:  www.heimilismatur.com

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *