Senn líður að jólum og væntanlega hafa flest allir gert upp hug sinn varðandi matinn á aðfangadag. Ef ekki þá mæli ég sterklega með þessari uppskrift.
Við fundum þessa uppskrift á sínum tíma á netinu. Ég man því miður ekki á hvaða síðu við fundum uppskriftina. Reyndar er uppskriftin á ensku, en leiðbeiningarnar eru mjög góðar. Með þessum dásemdar mat höfðum við jólakratöflumúsina okkar sem er einstaklega góð, waldorf saltat og tilheyrandi baunir.
PDF uppskrift Herragarðsönd
Jólakartöflumús með hjúp
1 kg sætar kartöflur
3 egg
¼ bolli (ca 60 gr) smjör
1/3 bolli sykur
1 tsk vanilludropar
¼ tsk salt
1 tsk kanill
Þegar búið er að sjóða kartöflurnar eru þær maukaðar og öllu hrært saman og sett í milli stærð af eldföstu móti
Hjúpur
3 tsk hveiti
¼ bolli smjör
½ bolli púðursykur
½ bolli pecanhnetur
Þetta hrærist allt saman og fer ofan á kartöflumaukið.
Bakast við 180°C í 30-45 mínútur.
Njótið vel
Heimild: www.heimilismatur.com