Eplakaka.
Þessi kaka er afar auðveld, bragð góð og býður upp á margar útfærslur. Stundum leik ég mér og set aukalega út í:
Brytjaðar döðlur
Saxað súkkulaði
Kókosmjöl
Marsipan
Rabbabara
Berjablöndur
O.fl. Það er um að gera að prófa sig áfram…. brosa og njóta 🙂
Hráefni.
150 gr smjör
150 gr hveiti
150 gr sykur
3-4 stk. epli.
Kanilsykur
Afhýðið eplin og skerið í skífubáta, hnoðið saman í höndum eða hrærivélaskál smjör, hveiti og sykur.
Smyrjið formið að inna með smjöri, stráið smá kanilsykri yfir botninn. Raðið eplunum og stráið kanilsykri yfir. Myljið deigið ofan í formið og að lokum klappa ofan á deigið. Mér finnst aldrei of mikið af kanilsykri, því set ég kanilsykur yfir að lokum.
Bakist við 150 gráður í 1 klst.
Gott að bera fram með þeyttum rjóma eða ís.