Gúllassúpa fyrir 4-6
500 g nautakjöt
400 g kartöflur
200 g gulrætur
100 g laukur
200 g sveppir
200 g rauð paprika
4 stk hvítlauksrif
1 tsk kúmen
2 tsk paprikuduft
800 g niðursoðnir tómatar / saxaðir
Kjötkraftur
Krydda kjötið með salti og pipar, steikja (brúna) það á pönnu og setja síðan í pott með sjóðandi vatni, sem búið er að setja kjötkraft út í. Bæta niðursoðnu tómötunum út í pottinn og sjóða þetta rólega.
Skera niður lauk, gulrætur, papriku og sveppi og steikja á pönnu, ekki steikja allt í einu, því þá soðnar þetta bara á pönnunni.
Bæta þessu út í pottinn ásamt hvítlauknum en hann var saxaður smátt. Skera helminginn af kartöflunum niður og setja út í pottinn, því það þykkir súpuna.
Látta þetta sjóða rólega, þar til kjötið fer að verða tilbúið, þá setja restina af kartöflunum út í pottinn og láta sjóða þar til allt er tibúið. Smakka til og krydda ef þarf.
Með þessu er gott að bera fram gott brauð og jafnvel smá sýrðan rjóma til að setja út á súpuna.