Heitur réttur A la Selvogs
Hér er uppskrift af góðum heitum rétti, góður í saumaklúbbinn eða á kaffiborðið.
1 fransbrauð rifið niður
1 dós Campells sveppasúpa
1 dós skorinn aspas
1 dós sveppir
½ dl rjómi
200 g skinka, má nota meira
Rifinn ostur eftir þörfum
Stöffing kalkúnakrydd frá Paxo
Allt hráefni nema ostur og krydd sett í pott og hitað, hellt yfir brauði, kryddað, ostur settur yfir og sett inn í ofn í 30-40 mín í 170°