100 g hrísmjöl
1 l mjólk
1/2 l vatn
1 tsk. salt
Kanill og sykur
Saftblanda
Byrjum á því að hræra hrísmjölið út í vatnið. Setjum mjólkina í pott og látum suðuna koma upp. Þegar mjólkin sýður, er hrísmjölsblandan hrærð út í. Hrært í þar til suðan kemur upp aftur. Soðið í 15 mínútur. Saltað eftir smekki.. Sett í skál og blöndu af kanil og sykri stráð yfir. Gott að nota krækiberja eða bláberjasaft.