Humarsúpa

Humarsúpa

Humarsúpa

Þessi humarsúpa er alveg meiriháttar góð. Mér finnst galdurinn að góðu humarsoði liggja í því að steikja skelina vel þegar soðið er búið til. Ég nánast brenni skelina smá. Einnig finnst mér skipta miklu máli að bragðbæta með koníaki eða brandy. En það er auðvitað smekksatriði. Ég set einnig alltaf sveppi út í súpuna og finnst mér best að steikja ferska sveppi í smjöri, salti og einum hvítlauksgeira.

Hráefni:

16-20 humarhalar
1 lítil dós tómatpuré
2 tsk. karrí
1 tsk. papriku krydd
rjómi (ca. dl)
1 tsk. aromat
2-3 msk. koniak eða brandy
olía
þeyttur rjómi

Brúnið skelina í olíu í potti, bætið við tómatpurre, karrí og paprikukryddi.  Látið malla í ca. 2 klst. vatnið látið fljóta yfir skelina.
Veiðið froðuna ofan af öðru hvoru. Sigta þarf súpuna.  Þykkið súpuna með hveiti jafning (vatn og hveiti hrært/hrist saman). Setjið rjómann útí og látið malla (ekki of mikil suða) í mesta lagi í 10 mín.
Pipar og aromati bætt útí, svo sveppir. Koniak næst og humarinn síðast. Ég set humarinn í heita súpuna og tek pottinn strax af hellunni og hræri í, þá er humarinn mátulegur eftir ca 2-3mín.

Humarsúpa

Það  má ekki sjóða eftir að koniakið og humarinn er kominn í súpuna.  Þeyttur rjómi borinn fram með.

Humarsúpa

Mér finnst alltaf gott að hafa heimatílbúið hvítlauksbrauð með súpunni og að sjálfsögðu koma fleiri brauð tegundir til greina.

Njótið vel og góða helgi

Heimild: www.heimilismatur.com

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *