Dugar i ca 10 kökur.
Innihald
- 6 bollar hveiti ( best að nota blátt Kornax )
- 1 bolli sykur
- 4 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
- 1 msk salt
- ½ líter af mjólk
- ½ líter af súrmjólk
Aðferð
Byrjum á því að blanda mjólkinni og súrmjólkinni vel saman.
Blöndum því næst þurrefnum saman og bætum mjólkurblöndunni rólega út í og hnoðum með höndum.
Deiginu skipt niður í meðalstórar kúlur/hluta og hver kúla flött út og síðan bökuð/steikt á pönnu án þess að nota feiti á pönnuna.