Kasjúhnetusnakk

Hráefni

2 Kasjúhnetupokar (ég keypti heilar og gaman að prufa sig áfram með aðrar hnetutegundir),
Tamarin soya sósa ( nota frá Sollu),
Cayenna pipar ( gott að setja líka rósmarin),
Timjan

Aðferð

Stillið ofninn á 200 gráður og blástur.
Setur bökunarpappír á ofnskúffuna sem þú ætlar að nota.
Hellir úr báðum pokunum í skál til að blanda öllu saman (eða beint á bökunarpappírinn).
Hellir dass en ekki miklu af Tamarin sósunni yfir,
setur ögn af Cayenna pipar yfir og svo undir lokin hellir þú Timjan létt yfir.

Þegar allt er komið blandar þú öllu vel saman.
Því næst dreyfir þú vel úr hnetunum yfir bökunarpappírinn,
passið ykkur að hafa hneturnar ekki í hrúgu og setjið inn í heitann ofninn í svona 5-7 mínútur.
Fylgist bara vel með að þær brenni ekki.
Mjög gott að slökkva svo á ofninum og láta þær standa í smástund til þess að ná stökku áferðinni.

Njótið og verði ykkur að góðu.

Mjög gott að taka með í vinnuna næsta dag sem millimál eða bara til þess að narta í.


Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *