Fyrir mörgum árum fengum við uppskrift frá vinum okkar sem þau kölluðu “Eið Guðna”. Hvers vegna þetta nafn var á þessum rétti vitum við ekki en þetta er góður og einfaldur réttur.
1 poki hrísgrjón eða 2-3 bolla af soðnum hrísgrjónum
1 soðinn eða steiktur kjúklingur
1/2 dós af sveppum eða við getum líka steikt sveppi og notað.
Rifinn ostsur
Sósa.
1 dl þeyttur rjómi
2 tsk karry
3 msk majones
3 dl kjúklingasoð eða sveppasoð
Majones, þeyttur rjómi og karry hrært saman. Soðinu blandað út í.
KJúklingurinn hreinsaður og kjötið skorið í litla bita.
Soðnum hrísgrjónum, kjúklingi, sósunni og sveppum blandað saman. Sett í eldfast mót og osturinn settur yfir. Sett inn í heitað ofn og látið hitna í gegn og láta ostinn brúnast aðeins.
Gott að bera fram með hvítlauksbrauði og salati.
Heimild: Eyja og Björgvin