Sumarsalat með perum og gráðosti

Sumarsalat með steiktum perum og gráðosti

Innihald:
Spínat
Klettasalatsblanda
2 tómatar
1 avocado
1 pera
Klípa af gráðosti.
Klípa af smjöri og smá salt
Ristað möndlukurl

Aðferð:
Skolið og þerrið salatið, setjið í skál eða á stórt fat. Skerið tómatana og avocado smátt niður og dreifið yfir salatið.


Afhýðið peruna, skerið hana endilanga í mjóa bita, hitið smjörið á pönnu og setjið smá sjávarsalt út á pönnuna. Steikið perurnar, best er að ná að brúna bitana á öllum hliðum. Setjið til hliðar.

Raðið perurnum yfir salatdiskinn og því næst gráðostinum. Ég set ca ¼ af oststykkinu. Mér finnst ekki of gott að hafa of mikinn gráðost, hann má ekki yfirgnæfa salatið.

Gott finnst mér að þurrrista á pönnu eða í potti möndlukurl. Best finnst mér að dreyfa kurlinu síðast yfir.

Þetta salat var meðlæti með kjúklingafille spjótum.

Verði ykkur að góðu

Heimild: www.heimilismatur.com

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *